13.5.2008 | 13:45
Allt að gerast kæra fólk.
Nú fer að nálgast í sumarið og ef maður pælir í því þá eru aðeins 3 mánuðir í að ég fari út til Ameríku!
Ekkert mikið að frétta af mér svosem, mamma stungin af í annarramanna brúðkaupsferð
Ég og Magga mín orðnar svaka nánar aftur og er það hið besta mál verð samt að fara að hitta hana Sunnu litlu, langt síðan hitti hana seinast þótt það hafi verið fyrir helgi finnst mér það vera ár og aldir!
Í seinustu viku fór ég í bæinn í ensku próf útaf AFS skiptinemanum, og það gekk ROSA vel, fyrir utan eitt dæmi, ég fékk kort af "bæ" og á því voru 4 bílar, og hann leiðbeindi mér og ég átti að giska hvaða bíl var hvar en það var svo flókið því ég er svo áttavillt Ég verð rosa stolt ef mér tekst að finna einhvað í Reykjavík!
Hey þegar ég fer út ætla ég að vera dugleg að blogga hér og allir eiga að vera duglegir að kommenta í staðinn ef þið verðið ekki dugleg að kommenta verð ég ekki dugleg að blogga IT'S A DEAL RIGHT?
Ein mynd af okkur systrum í lokin
Íris Guðmundsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)